![]() |
||
Doddinn ... Doddi Mínir Linkar ... doddolfur.deviantart... Myspaceið mitt ... heimasíða ... Heróglymur Plötudómar ... Capitol K Lag vikunnar ... The bloody chickens - Midnight drive Hljómhvöðull mánaðarinns Gamalt 04/13/2003 - 04/20/2003 |
laugardagur, júní 17, 2006
Ó vorboði ljúfi
Ó vorboði ljúfi nú er margt í húfi hvar er þitt sumar og sól enn finnst mér vera heilög jól Ó vorboði ljúfi veita myndi ég þér blíðu mína ef eigi værir þú karlmaður. Doddi bloggaði @ 2:53 PM. ####### sunnudagur, maí 28, 2006
Halló. Ég ákvað að snúa aftur eftir langan tíma í dvala og leti frá bloggheiminum. Það sem ég hef verið að gera er svona frekar typical unglingsdót: ljúka prófum, njóta sólar, hlusta á tónlist, spila tónlist, fá mér nýjan kassagítar sem er feitur, hanga með vinum og heittelskaðari kærustu og vinna í ræktunarstöðinni í fossvogi. Já og svo kaus ég í gær. Það var mjög góð tilfinning að fá loksinns að kjósa en hins vegar kom það á móti að valkostirnir voru síður en svo gallalausir. Flokkur var ýmist með eitthvað sem ég var sammála en margt annað sem ég var mjög ósammála og svo gekk þetta bara sömu leið hjá næsta flokki. En ég meina hey .. . . .. . hér átti að koma voðalega sniðug lína sem ég einfaldlega hef ekki...
Gærkvöldið var alveg hreint magnað. Ég vaknaði snemma og dreif mig á kjörstaðinn sem í mínu tilfelli var Breiðagerðisskóli og kaus. Svo fór ég raklaust þaðan í smekkleysu plötubúð og byrjaði að stilla upp dóti þar sem mér var ætlað að taka upp 12 tíma tónleikagjörning hjá hljómsveitinni Foghorns og hljómsveitinni Reykjavík. Til liðs við mig í upptökustússeringum var Þorbjörn góður kunningi minn sem hljóðritaði með mér allan gjörninginn. Þetta var geðveikt og einnig mjög skemmtilegt. Tónleikagjörningur var einfaldlega þannig að þessi tvö bönd: Foghorns, reykjavík skiptust á að spila í 30 mín hver í 12 klukkustundir. Tónleikastaðirnir voru: Smekkleysa plötubúð 13 - 16, Amsterdam 16 - 24 og svo að lokum grandrokk 24 - 1 um nóttina. Ég get ekki ímyndað mér hversu búnir þeir voru á því þegar komið var á síðasta tónleikastað. Ég var alveg búinn þegar komið var á endann og þó var ég aðeins hljóðritari þessa kíngimagnaða gjörnings. Bæði böndin voru ómótstæðilega góð og held ég að Reykjavík sé eitt besta tónleikaband sem ég hef nokkurntíman séð og heyrt í. Svo fór ég líka á tónleika með hljómsveitinni dynamo fog í gær. Það var mjög geðveikt. Þetta voru fyrstu tónleikarnir þeirra og þeir spiluðu af miklum þéttleika og krafti. Ég hlakka mjög til að heyra skífu þeirra. Já svo vona ég að það fari að koma betra veður. Það er búið að skána aðeins. Það er geðveikt að vinna í ræktunarstöðinni, sérstaklega þegar það er gott veður. Plöntur eru svo róandi og friðsælar. Nokkrar konur í vinnuni sögðu að í framtíðinni yrði ég ábyggilega plöntufræðingur með tónlist sem áhugamál. Í smástund hræddi tilhugsunin mig svolítið. En samt, það er ábyggilega mjög kósí að vera plöntufræðingur. Mig langar rosalega mikið útá land í sumar. Ég hef þráð það lengi að keyra út á land. Alveg síðan ég fékk bílprófið mitt. Ég hef verið að gæla við þá hugmynd að keyra til Seyðisfjarðar og heimsækja góða kunningja þar og einnig fara á Lunga festivalið sem er þar í júlí..jafnvel spila. ..það væri magnað. En allaveganna þá væri planið bara að leggja á stað aðeins fyrr og keyra eitthvað útí rassgat og skoða og enda svo á Seyðisfirði...þannig að ef einhver er til í ród tripp... Ég þakka fyrir mig í bili og vona að ég verði aktívari í sumar.....það er samt frekar týpískt að ég verði það ekki...Allaveganna hafið það gott.. Plötur liðinna tíma: The Clientele - The violet hour The Clientele - Strange geometry Flaming lips - At war with the mystic Gotan project - Lunático ![]() The Foghorns í smekkleysu plötubúð ![]() Reykjavík í smekkleysu plötubúð ![]() Bart Cameron (Foghorns) og Haukur (Reykjavík) á Amsterdam. ![]() Reykjavík á Amsterdam ![]() Dynamo Fog í kaffi hljómalind ![]() Foghorns á Grand rokk ![]() Reykjavík í einum of góðri sveiflu á Grand rokk ![]() Nýji kassagítarinn minn... ![]() Sumarfífill.... Doddi bloggaði @ 10:27 PM. ####### mánudagur, apríl 10, 2006
Freaking aids
Það sagði píanó krakkinn í Englandi alltaf í stað þess að segja eitthvað sem ég kann ómögulega að bera fram á ensku en á lélegri íslensku stafast einhvernvegin á þennan máta : "fokking eij" . Hann vissi að hann mátti ekki segja fokking þannig að hann bjó til orðaleik úr þessu . . . Móðir hans skammaði hann samt. Jæja, páskafrí. Það ætti að gefa manni smá tíma til þess að slaka á fyrir próf. Ég var að fylgjast með úrslitum músíktilrauna um daginn á veraldarvefnum og mér finnst músíktilraunir bara vera voðalega óspennandi fyrirbæri núna. Dómnefndin sérhæfir sig í því að velja eitthvað rosalegt flipp og lokar hurðinni á mörg góð bönd. Það er engin spenna finnst mér lengur. Ég man þegar ég fór á músíktilraunir árið 2000 þar sem ég sá dreng blása í snúrur og framkvæma ýmis óhljóð með heimasmíðuðum tækjum og tólum. Það fannst mér rosalega spennandi að sjá. Þessi drengur er tónlistarmaðurinn Auxpan og ég hef suðað í honum um disk frekar lengi. En æj . .ég veit ekki . Kannski fylgist ég bara svona illa með. Peysufatadagur Kvennaskólanns gekk yfir um daginn með glæsibrag. Við sungum og dönsuðum út um allan bæ og svo var matur um kvöldið og partý. Það var mjög gaman. Þegar ég vaknaði morguninn eftir var Valdís að fara að hlaupa útum dyrnar á leiðinni á keflavíkurflugvöll. Ég sakna Valdísar nú þegar en innan skamms mun hún koma heim fagnandi hendi og færa manni Emeríska brjóssykra. En já, ég held samt að þetta páskafrí sé svolítið tækifæri fyrir mig til þess að slaka ekki á heldur gera alla hina hlutina sem mig langar að gera en hef ekki getað gert. Spáin mín sagði að ég væri í góðum málum fjárhagslega og að hlutirnir yrðu meira að segja ennþá betri bráðum þar sem viðskiptasnilligáfa mín kæmi sér að mjög góðum notum og þá dytti ég í lukkupotinn. Svo sagði hún líka að það væri allt í lagi að sýna það af og til hversu ríkur maður væri. Spáin mín er fáviti. Ég á ekki krónu og ég efa að það sé eitthvað að fara að breytast. Um daginn voru tónleikar í listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Þetta voru tónleikar tileinkaðir íslenska nútíma- tónskáldinu Jóni Nordal. Jón Nordal hefur samið fjöldann allan af verkum og stendur mjög framarlega af íslenskum nútíma músíköntum. Jón Nordal mætti á tónleikana ásamt konu sinni. Ég er oftast ekkert stressaður að spila fyrir framan fólk, en ég er mjög stressaður að spila fyrir framan höfundi verkanna. Sérstaklega ef verkið er flott og vel skrifað. Þá vill maður ekkert vera hálvitinn sem eyðileggur það. Svo finnst mér fólk vera með svo heimskulegt viðhorf gagnvart nútímaklassík. Það er alltaf eitthvað svona :"Þetta skiptir ekki máli maður, það heyrir enginn ef þú ruglast þegar þú spilar þetta. Þetta er nútímaklassík". Mér finnst að það ætti að fara með þessa tónlist alveg jafn vel og alla aðra tónlist. Sérstaklega þau verk sem eru vel samin. Auðvitað eru til hundleiðinleg nútímaverk en ég held einmitt að fólk telji það bara vera staðreynd að það séu bara til leiðinleg nútímaverk. Jæja ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili. Au revoir og eigið góða páska. ![]() Kjeppar á peysufatadegi!! ![]() Smellið hér til þess að sjá myndbandsbrot af hinum drengilega Jónka stíga sporin ![]() Hávaðatónlistarmaðurinn Auxpan á músíktilraunum 2000 ![]() Það er minn draumur í dós að fá að sjá Kronos kvartettinn leika á tónleikum... Diskar líðandi stundar: Belle & Sebastian: The life pursuit Kronos Quartet: Performs Phillip Glass Susumu Yokota: Image 1983 - 1998 Doddi bloggaði @ 12:18 AM. ####### þriðjudagur, mars 21, 2006
Halló halló. Ég er þá loksinns kominn aftur. Það hefur mikið gengið á hjá mér síðastliðnu daga. Eða vikur réttara sagt. Um daginn tók ég þátt í því spennandi verkefni að semja svolítið af tónlistinni fyrir kvennóleikritið en það var leikritið "Stræti" eftir Jim cartwright. Ég setti alla tónlistina á netið og fólk getur niðurhalað því frítt hér. Já ég setti líka nýtt lag mánaðarinns. Það er reyndar lag sem ég , daníel og kristján tókum upp. VIð göngum undir nafninu the bloody chickens í þessu prójekti. Það er mjög hresst....
Ég er loksinns búin að laga þessa síður hérna svolítið. Ég raðaði bloggurunum hér til hliðar í stafrófsröð og bætti líka nokkrum inná eins og t.d. Sif sellóstelpu, Steina tík, Bigga bassa og Kristín Lilju úr bekknum mínum. . .JEIJJJJ... Já það er voða mikið að gera núna . Og skólin verður bara verri með hverjum degi. Ég er að taka þátt í sýningu hjá íslensku óperunni sem tekur sinn tíma og svo er ég að fara taka stigsprófið mitt rétt bráðum. En svo eru aðrir hlutir sem maður getur glaðst yfir eins og t.d. páskafríið. Kennararnir í skólanum segja alltaf að við eigum að vera dugleg að nota páskafríið því það sé svo góður tími til að læra. Ég segi nú bara búhú. Ég horfi fram á gott páskafrí. Og þar kemur bók í klofi lítið inn í myndina. Ohhh það er svo pirrandi svona dót. Þegar maður er fátækur og ólöglegur verður maður að gera sér grein fyrir því að maður er ávallt að taka áhættu með því að nota ólöglega niðurhöluð forrit af netinu. Ég var byrjaður með nýtt project svona rosa raftónlistardót og taldi mig vera orðinn hinn fínasta raftónlistarmann þangað til einn dag að forritið sagði : Your program has discovered an illegal copy violation because you are a cheap bastard". Þá þurfti ég að fara úr live 5 niður í 4 sem er ekki eins kúl og getur ekki opnað lögin sem ég var búin að fikta með í 5. Ég fór í klippingu um daginn. Núna er ég með svona ágætlega stutt hár. Það er skemmtilegra finnst mér. Ég er miklu léttari. ![]() Strákarnir í hljómsveitinni "The elevator boy" hressir.... Ef brynjar og Kiddi úr bekknum mínum væru þýskt raftónlistardúó þá væri þetta ábyggilega svona ![]() Þýska rafdúóið Nitze leikur á Nasa í kvöld ![]() Hvar er hljómsveitin múm? Maður saknar þeirra svolítið ![]() Ég sá myndina Me and you and everybody we know um helgina og fannst hún mjög góð. ![]() Endilega kíkjið í Hellin (TÞM - Tónlistarþróunarmiðstöð) um helgina (nánar tiltekið á laugardaginn) á hörku stuð tónleika... Plata liðinns mánuðar: Susumu Yokota - Image 1983 - 1998 Doddi bloggaði @ 12:26 AM. ####### mánudagur, desember 12, 2005
ÚFF?..hvílík kvöð þessi eintómi lærdómur. Mín skoðun er sú að það ætti að vera símat allt árið. Og engin próf. Maður myndi líka læra meira á því. Hver er sammála? Líklegast eru fáir sammála. Þetta hefur auðvitað allt sína kosti og galla.
Um helgina kíkti ég á listasýningu í Hinu húsinu þar sem nokkur ungmenni sem eru á listabraut í FB voru með sýningu. Meðal annars voru þar nokkrir kunningjavinir mínir : Sæmundur, Hrafnhildur, Ragnheiður, Logi og Tanja. Sýningin var í heildina mjög góð og ég hreifst mikið af verkunum. Mjög gott mjög gott . . .fyrir þá sem hafa áhuga á því að kíkja á þessa sýningu og ég mæli eindregið með því þá verður hún í listagallerý hins hússins til 5. Jan!!! Annars hefur helgin einkennst mjög mikið af því að lesa og lesa og lesa. Félagsfræði er skemmtileg. En það er samt ekkert samasem merki á milli skemmtunar og þess að lesa 317 blaðsíður . . .jæja prófið var allaveganna í morgun og mér gekk vel :) Ég ætla að veita verðlaun fyrir bestu félagsfræðilegu tilgátuna. . . jeij . . . . . nei í alvöru samt . .. svo getum við sannreynt tilgátuna . . .jeijj . .. . Hérna er ein: "Það að horfa á fólk eiga í erfiðleikum með það að svara laufléttum spurningum í sjónvarpi gerir áhorfandann ánægðann með sjálfan sig." . . . ég minni fólk á að þetta er tilgáta ekki alhæfing. En svo mun það auðvitað breytast í alhæfingu eða svokallað model þegar ég hef sannreynt þetta, gefið út bók og fengið nóbel . . . .HEH . . .já við erum öll skepnur. <Hér stendur Sæmundur upp við verk sitt sem var stór járngerður róbot, um 2 metrar á hæð og í maga hans bar að geyma sjónvarp sem geymdi vídjólistaverk . . ![]() Listaverk Ragnheiðar og Tönju ![]() Listaverk Loga var hellandi nýmóðins sturtuklefi ![]() Hrafnhildur og vídjólistaverk hennar ![]() Shower Power!!! ![]() Félagsfræðin gengur mikið útá það að sjá hið einstaka í því almenna.... Doddi bloggaði @ 2:53 PM. ####### þriðjudagur, desember 06, 2005
"i could not get through september without a battle"
Já ég er svo sannarlega frekar messaður á því þessa daga. Prófin hafa tekið völd enn eitt árið þótt þau taki sjaldnast völdin á mér. Á svona tímum er einmitt mjög gott að blogga af því að það er skemmtilegra heldur en að horfa bara á bókina sem þú átt að vera að glugga í. Já. Annars veit ég ekkert hvað ég á að blogga um. Ég fór í frönskupróf um daginn. Ég hef blendnar skoðanir um hvernig það gekk . .. Sorrí mig langaði bara svo til þess að nota þetta orð. Diskur mánaðarinns: Er svo sannarlega lookaftering með Vashti Bunyan. Þetta er æðislegur diskur. Vashti Bunyan gaf síðast út disk 1970 þannig að hún hlýtur að vera rúmlega 50 ef ekki 60 í dag. Diskur sem ég mæli með í jólapakkann. Ég ætlaði að reyna að láta inn lag hér á síðuna en ég get það ekki. Sem er ekki gott. En þið getið tjékkað á síðunni hennar http://www.anotherday.co.uk . Ég hef verið að taka svolítið upp fyrir næstu plötu mína síðastliðnu daga. Þetta gengur mjög vel og er ég að vona að hún líti dagsinns ljós sem fyrst. En ég er samt að reyna að vanda mig eins og ég get . .þannig að kallíbúmmbúmm . .!!! Myndir liðinna daga: ![]() Hello kitty ![]() Star wars slagur í skólanum . . .æsispennandi ![]() Sinfóníuhljómsveit Íslands í harðri dandssveiflu ![]() Valdís að taka þátt í Ford keppninnni ![]() Matarklúbburinn Daníel hittist enn og aftur um helgina og hélt matarfund þar sem skemmtilegheitin réðu ríkjum. ![]() Herbergið mitt , ,, , in a mess ![]() Hvað er betra en Futurama á svona dögum. P.s. ég skellti inn nokrum nýjum myndum á doddolfur.deviantart.com Doddi bloggaði @ 2:22 PM. ####### þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Jæja. Nóvember mánuðurinn er svo sannarlega kominn og honum fer kólnandi með hverjum morgni. Bráðlega fer maður að sjá litla jólaálfa skjótast inn og út úr búðum með litlu húfurnar sínar. Súpandi jólaöl úr frökkum sínum með leynilegt glott á vör. Og svo fer jólafríið að koma. Ég ætla að reyna að vinna eins lítið og ég get í jólafríinu, ég bara nenni því ekki. Ég lít ekki á það sem leti hjá mér heldur finnst mér vinna bara taka alltof mikinn óþarfa tíma af mínu svokallaða fríi. Frekar ætla ég að þeyta eitthvað í mínum óendalegu áhugarmálum.
Þó svo að bloggtíðni mín hafi legið frekar mikið niðri þá þýðir það ekki að ég hafi legið niðri. Síður en svo. Um helgina kíktum við strákarnir í kumpána hljómsveitinni Heróglymur til Höfn í Hornafirði. Rútan tók endalaust langan tíma fram og til baka en það var þess virði og svo var landslagið á leiðinni ekkert til þess að kvarta yfir. Við gistum í framhaldsskólanum á Höfn en svo voru allir færðir yfir í grunnskólann vegna drykkju og láta um nóttina. Á föstudeginum spiluðum við og það gekk bara ágætlega. Eftir það forum við á bar sem kallast víkin og barinn fylltist fljótt af sjálfstæðismönnum og drukknum unglingum. Unga fólkið og sjálfstæðismennirnir létu hvert annað fá að heyra það og mikið var rifist um pólítík í öllum þeim röngustu aðstæðum. Til þess að gera gott úr þessu tók Árni Jónsen upp kassagítarinn og tók nokkur lög. Á endanum flúði ég aftur í skólann þar sem maður spjallaði við mann og annann og líka konu og aðra konu áður en maður fór að sofa. Daginn eftir vöknuðum við og fórum í sund sem var rosalega hressandi. Svo fórum við á kaffihornið og fengum okkur að borða. Það er einn bæjarróni á Höfn og hann þekkja allir enda er hann alltaf fullur. Hann heitir Steingrímur og var á Kaffihorninu þegar við mættum þangað. Hann hafði babblað eitthvað við kunningja okkar úr hljómsveitinni ?We made god? og sagði þeim stoltur að hér væri ?bestu hamborgarar á landinu? , en þegar þeir litu óþreyjufullir yfir matseðilinn sáu þeir að hið blessaða Kaffihorn seldi ekki einu sinni hamborgara. Þegar við vorum að fara að panta greip hann fram í fyrir okkur og sagði við afgreiðslustúlkuna , ?Hey , , þú ? . Hey fröken? Hringdu fyrir mig í hana mæju. ?? Afgreiðslustúlkan svaraði með þreytulegum tón ? Nei gerðu það bara sjálfur, ,hmmm , hringdu í 118 eða eitthvað?. Steingrímur: ?Hundraðogátján?? Hvað er númerið þar?..!?. Innan skamms þegar Steingrímur blessunin hafði gert afgreiðslufólkið á kaffihorninu þreytt þá kom eigandinn inn og kallaði: ?Steingrímur minn, druuullaðu þér út!!?. Þetta fannst okur kostulegt. Á laugardagskvöldið spilaði ég svo og það gekk ágætlega líka. Og svo horfðum við á nokkur bönd: Fighting shit, We made god og Lights on the highway. Seinni parts kvöldsins eyddum við að mestu leyti upp í skóla að rabba við strákana úr Fighting shit og we made god. Svo kíktum við niður á ballið sem var í Sindraskála eða hvað sem þetta hét og þar léku menn öllum illum látum. Menn mynduðu hrúu á gólfinu og óður drengur klæddi sig úr skyrtunni sinni og hoppaði úr dágóðri fjarlægð ofan á hrúguna og lenti með hnéð á hausnum á einhverju greyi. Já það er lítið annað hægt að segja en að þessi ferð hafi verið kostuleg og góð tilbreyting á rútínu minni. Jæja og nú er skólinn að verða búinn fyrir jól og þá get ég eytt tíma almennilega í plötuna mina loksinns. Þá verður hoppað og trallað !! Það er eitthvað af tónleikum í vikunni. Við Heróglymur erum að spila á Dillon Bar á morgun (miðvikudag 16. Nóv) og á föstudaginn í Norðurkjallara MH um 9 leytið að ég held. Ég er svo að spila í Norðurkjallara Mh á fimmtudaginn um rúmlega 8 leytið. Endilega kíkjið ef þið sjáið ykkur fær um að mæta. Plötur mánaðarins : Jim O?rourke: Insignificance Þórir: Anarchists are hopeless romantics The Zutons: Who killed. . . The Zutons ![]() Bláir tindar blöstu við okkur á leiðinni. ![]() We painted the walls álfar... ![]() Hornfirðingar eru oft taldnir hættulegir fyrir frjálslega menningu. ![]() Síðasta kvöldmáltíðin ![]() Fighting shit menn voru hressir!! ![]() Heimkoman! ![]() Eru menntaskólar alltof tölvuvæddir?? hvað finnst ykkur? ![]() Fartölvuálfurinn Vilhjálmur! :) ![]() Viefff!!! Doddi bloggaði @ 6:30 PM. ####### |
Blogg
... Almar almennilegi Tónlist ... Sonic Youth!! Linkar ... hugi.is |